SENDUM FRÍTT í PÓSTBOX EÐA DROPP PICKUP POINTS UM ALLT LAND

Persónuverndarstefna

Okkur hjá Fairvape ehf. er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem við meðhöndlum. Í persónuverndarstefnu okkar kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að starfsmenn, viðskiptavinir og aðrir einstaklingar, eins og við á hverju sinni, séu upplýstir um hvernig við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar.

Ábyrgð

Fairvape ehf. kt. 550616-1650, hér eftir nefnt Fairvape, Við eða Söluaðili, vinnur eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem við söfnum sem söluaðilli. 

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga 

Við söfnum upplýsingum um starfsmenn, viðskiptavini, og birgja sem okkur er skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga, samþykki hins skráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila.  

Við söfnum persónupplýsingum um viðskiptavini okkar í eftirfarandi tilgangi:

  • Til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.
  • Til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum.
  • Til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
  • Til að tryggja að reglum um aldurstakmörk sé fylgt.  

Við söfnum einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að við getum ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu. 

Miðlun persónuupplýsinga 

Við munum aldrei nýta persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir.  Við geymum aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga. 

Við munum aldrei miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki eða í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga. Við áskiljum okkur þó rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi eða verktaki á okkar vegum, og þá í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita viðskiptavinum þjónustu eða vöru sem viðskiptavinur hefur gert samkomulag um. Við afhendum vinnsluaðilum einungis þær persónuupplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að ná framangreindum tilgangi. Aðal vinnsluaðillinn sem við treystum fyrir persónuupplýsingum er Shopify en vefverslunarkerfið er keyrt á þeirra tækni, sjá persónuvernarskilmála Shopify hér.

Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggjum við trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Við leigjum aldrei eða seljum persónulegar upplýsingar um viðskiptavini.

Aðrir aðilar sem vert er að nefna sem nauðsynlegt gæti þótt að afhenda vissar persónuupplýsingar í takt við skilmála þessa eru allir með strangar persónuverndar stefnu og í takt við ríkjandi lög. 
Þar ber að nefna Valitor, Netgíró og PEI, vegna greiðslu fyrir vörur og þjónustu, Fera.ai sem fer tekur við myndum sem óskað er eftir til að sannreina aldur, Mailchipm fyrir póstlista ef fólk óskar eftir að skrá sig á þá og regla.is sem er bókhalds og sölukerfið okkar.

Öryggi gagna 

Við leggjum mikla áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Við tryggjum að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni. 

Persónuverndarstefna okkar er endurskoðuð reglulega og er stefna okkar að vera eins skýr og berorð um hvernig við söfnum persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Ný útgáfa skal auðkennnd með útgáfudegi.

 

Persónuverndarstefna samþykkt 02.11.2019